Göngu-HrólfurGÖNGUFERÐIR MEÐ GÓÐUM FÉLÖGUM

Forsíða / Um gönguferðirnar

Hugmyndafræði

Gönguferðirnar

Gönguferð um fjallastíga og gamlar leiðir gefur möguleika á að upplifa umhverfið í rólegum takti. Á göngunni er hægt að fara um, sjá og skoða staði sem eru annars óaðgengilegir og heillast æ ofaní æ af stórfengleika fjallanna, dýpt giljanna, víðáttu fjallendisins og lit og fegurð blómanna.

Á göngunni gefst oft tækifæri til að skoða merki um horfna menningu og starfshætti, kynnast lífinu í litlum þorpum og daglegum störfum íbúanna sem og að fræðast um svæðið sem farið er um, sögu þeirra og menningu. Leið göngumansins liggur eftir stígnum, stundum breiðum og auðförnum en stundum eru þeir aðeins ósýnileg spor í landslaginu.

Í hópunum eru 12–25 manns og með á göngunni er allskonar fólk, allir eru á sömu leið og vilja vera í hóp og njóta ferðarinnar og þess sem hún býður upp á með öðrum.

Í ferðum Göngu-Hrólfs er yfirleitt dvalið á hótelum eða gistiheimilum með tveggjamanna herbergi og sturtu og baði og farangurinn þegar farið er milli gististaða er fluttur svo það þarf aðeins að bera dagpoka með aukafötunum og sameiginlegu nesti.

Gönguferð

Flokkunarkerfi

Erfiðleikastig gönguferða

Göngu-Hrólfur flokkar ferðir sínar í 1–3 fjöll eftir því hversu erfiðar þær eru. Þættir sem miðað er við eru styrkur og þol, eðli stíganna, hækkun og lækkun, lengd göngu og tími.

1 Fjall

Allar göngur í ferðinni eru léttar og farið er eftir góðum eða nokkuð góðum stígum. Hækkun er ekki meira en 2–300 metrar og daglega er gengið 2–5 tíma. Það er nóg að hafa gengið nokkuð reglulega í nágrenni sínu eða hafa verið í líkamsþjálfun til að geta verið með. Auk þess er góð heilsa mikilvæg og áhugi fyrir að skoða umhverfi sitt gangandi.

2 Fjöll

Í hluta af ferðinni er farið um ójafnt land með ógreinilegum stígum. Hækkun getur verið upp í 6–800 metra og suma dagana tekur gönguferðin 8 tíma. Ferðir eru líka metnar sem tvö fjöll ef einn eða fleiri göngudagar eru yfir 20 km. Það þarf að hafa reynslu af fjallgöngum og gönguferðum úti í náttúrunni eða taka virkan þátt í einhverri góðri líkamsþjálfun til að njóta ferðarinnar. Og það er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi.

3 Fjöll

Sumir göngudagar eru erfiðar vegna þess að undirlagið er mjög ójafnt, það getur þurft að klifra nokkurn hluta leiðarinnar og jafnvel nota reypi til öryggis. Dagarnir geta verið langir 8–10 tímar og hækkun yfir 800 metra. Það er nauðsynlegt að hafa þjálfun úr fjölbreyttum fjallgöngum á Íslandi, vera í mjög góðu formi og vera laus við alvarlega lofthræðslu.

ATH: Í öllum tilfellum er lögð áhersla á að heimsækja viðkomandi land utan heitasta tímans en veður er nokkuð sem aldrei er hægt að sjá fyrir. Í allflestum ferðum er hægt að sleppa einum eða fleiri göngudögum.