Ítalía / Garfagnana
Yndisganga í Garfagnanadalnum
Steinunn Harðardóttir

Í vinnslu
Verð á mann
Verð auglýst síðar
Þessi ferð er í vinnslu.
Staðsetning
Garfagnana, Ítalía
Dagsetningar
6. maí – 26. desember 2027
Erfiðleikastig
Léttur taktur
Hópstærð
Allt að 16 manns
Um ferðina
Garfagnadalurinn í norðvestur Toscana er á milli tveggja ólíkra fjallgarða. Apenninafjöllin, að mestu úr sandsteini mynda einskonar hrygglengju eftir ítalíu endilangri. Í dalnum eru hæstu topparnir um 2000 metrar. Það eru líka hæstu tindar Apúan alpana. Úr þeim kemur Carrara marmari sem Mikelangelo notaði í frægustu stytturnar sínar. Milli fjallgarðanna rennur áin Sercio sem hefur gegnum árþúsundir myndað þröngan og einangraðan dal sem er grænn og skógi vaxinn hátt upp í hlíðar. Um miðja síðustu öld þegar landbúnaður var almennt iðnvæddur var slíku ekki komið við í Garfagnana og því fluttu margir til Ameríku(Kaliforníu), Skotlands og víðar. Vegna þessa jókst einangrun svæðisins og því hafa ýmsir gamlir siðir og ræktunaraðferðir varðveist og fjölmargir litlir miðaldabæir lítið breyst gegnum aldirnar. Þetta er í dag helsti styrkleiki og aðdráttarafl Garfagnanadalsins og heimamenn leggja mikla áherslu á að vernda þessi sérkenni. Háar byggingar eru ekki leyfðar. Hótel eru lítil og persónuleg og bændagistingar algengar og mikil áhersla lögð á rólegan lífsstíl. Einkunnarorðin eru “Garfagnana þar sem tíminn flýgur ekki frá þér.”
Í ferðinni er leitast við að kynnast dalnum og sérkennum hans sem best. Til þess nýtum við meðal annars einstakan samgöngumáta “Lucca -Aulla járnbrautina” Hún var mikilvægur þáttur í að rjúfa einangrun dalsins. Lagning hennar hófst árið 1892 og lauk 1959, 67 árum seinna. Við gistum á hóteli í námunda við eina brautarstöðina og notum lestina til að komast á milli áhugaverðra staða í dalnum.Þaðan göngum við eftir þægilegum stígum og skoðum kastalabæ eins og Castelione di Garfagnana en um hann er einstaklega vel varðveittur borgarmúr og njótum útsýnis yfir Castelnuovo og Garfagnanadalinn úr Mont Alfonso kastalanum sem gnæfir yfir bænum. Göngum eftir kastalamúrum hins einstaka bæjar Lucca og í Verrucola kynnumst við lífinu í miðaldakastala þar sem gestgjafar eru í miðaldabúningum og gestir geta m.a. klæðst hringabrynju. Við brögðum einnig á einkennisafurðum héraðsins eins og réttum úr farró spelti, kastaniumjöli, kóngasveppum, pecorino osti og f.l.

Ferðaáætlun
Fyrsti dagur Keflavík-Milano Castelnuovo di Garfagnana Flogið frá Keflavík til Mílano og lent um 15.00, þaðan ekið í ca 4 tíma til Castelnuovo di Garfagnana sem er stjórn- og verslunarmiðstöð Garfagnanadalnsins. Við bókum okkur inn á La Lanterna, hótel við útjaðar bæjarins, sem verður samastaður okkar alla vikuna. Þar tekur staðarleiðsögumaðurinn Matteo á móti okkur og fræðir um dagskrá vikunnar áður en við setjumst að kvöldverðarborðinu. https://www.guestreservations.com/hotel-ristorante-la-lanterna/
Annar dagur Fortezza di Mont'Alfonso og Vecchio Mulino Við byrjum daginn á að ganga að borgarmúrunum og inn í miðbæ Castelnuovo sem er á ármótum Sercio- og Turido ánna. Síðan er haldið upp að Alfonso kastalanum, Fortezza di Mont'Alfonso (502 m y.s.) sem er mikið virki á hæð fyrir ofan bæinn. Þaðan er einstakt útsýni yfir Garfagnanadalinn og til hinna ólíku fjallgarða sem umlykja hann. Göngum aftur í bæinn og fáum að bragða á framleiðslu svæðisins t.d.farró og peckorino osti á veitingahúsinu Il Vecchio mulino. https://il-vecchio-mulino.placejoys.com/ Eftir spennandi hádegisverð er hægt að fara í stutta göngu um bæinn áður en haldið er á hótelið. Gengið 7-8km. hækkun/lækkun 250 m. Kvöldverður á hótelinu.
Þriðji dagur.San Romano, Verucole kastali.
Í dag notfærum við okkur hina einstöku járnbraut sem liggur gegnum Garfagnanadalinn frá Aulla til Lucca. Við höldum í norður til San Romano in Garfagnana og könnum efri hluta Garfagnanadalsins. Göngum þar upp á áberandi hæð í miðjum dalnum og njótum útsýnis til allra átta. Efst trónir kastalinn Fortezza delle Verrucole sem er vel varðveitt miðaldavirki í um 600 metra hæð y.s. Þarna er nú Archeopark,eða lifandi safn. Rústir virkisins voru endurbyggðar árið 1986 þannig að hægt er að fá innsýn í lífið þar á miðöldum. Boðið er upp á klukkutíma leiðsögn, gestir geta sett sig inn í aðstæður og t.d.prófað að bera hringabrynju að riddarasið. Við fáum okkur síðan hádegisverð á veitingahúsi í þorpinu áður en við höldum með lestinni til baka. Gengið 10 km, hækkun/lækkun 200 m.Kvöldverður á hótelinu.
Fjórði dagur.Lucca vatnsleiðsla og borgarmúrar. Við höldum enn með lestinni góðu og komum eftir um 45 mín. á síðustu stöð járnbrautarinnar í miðaldabænum Lucca sem er miðstöð sveitafélagsins. Við göngum að vatnsleiðslu sem lögð var á 19.öld og liggur til bæjarins frá Pisan” fjöllunum. Úr henni fá borgarbúar gott neysluvatn enn í dag. Við göngum fram og til baka um fallega náttúru meðfram reglulegum súlum vatnsleiðslunnar um fjóra-fimm km. hvora leið, fræðumst um þetta mannvirki og kynnumst áhugaverðri sögu Lucca. Í borginni finnum við okkur góða veitingastaði til að seðja hungrið.
Síðan er farið í stutta göngu um borgina sem var mikilvægt virki/ herstöð á dögum Rómverja og hefur verið lifandi lista -og menningarbær gegnum aldirnar. Þaðan er tónskáldið Puccini og þar er mikið af fallegum torgum, kirkjum og turnum. Þá göngum við smá spöl eftir borgarmúrunum sem eru fjögurra metra langir, mjög breiðir og vel varðveittir. Þar er nú fallegur og gróskumikill almenningsgarður. Haldið heim á hótel með lestinni. Gengið um 9 km. Engin hækkun. Kvöldmatur á hótelinu.
Fimmti dagur. Borgo a Mozzano, Djöflabrúin og matur og vínsmökkun.
Haldið með lestinni ca 30 mín til Borgo a Mozzano sem er í neðri hluta Garfagnanadalsins. Þar skoðum við hina einstöku djöflabrú, Il Ponte del Diavolo, sem á að hafa verið reist með hjálp djöfulsins. Haldið er gegnum bæinn framhjá fallegri myllu og kirkju að vín- og ólífubúgarðinum Macea. Þar stunda miklir hugsjónamenn bíódínamíska ræktun af eldmóð. Vínið er unnið úr sérstökum þrúgum og einstaklega gott. Við fáum að bragða á því með léttri máltíð. Eftir notalega heimsókn förum við um tuttugu mínútna leið niður á brautarstöðina og þaðan heim með lestinni til baka. Þægileg ganga ca 7 km. Hækkun/lækkun ca.200m. kvöldverður á hótelinu.
sjötti.dagur Gengið til Castilione di Garfagnana. Í dag förum við gangandi frá hótelinu gegnum bæinn Pieve a Fosciana og áfram upp til Kastalabæjarins Castiglione di Garfagnana sem er í um 545 metra hæð yfir sjávarmáli. Þetta er vel varðveitt miðaldaþorp umlukið veglegum varnarmúrum. Það tilheyrir samtökunum I Borghi più Belli d'Italia (fegurstu þorp Ítalíu). Við gefum okkur góðan tíma til að skoða þorpið og þræðum þröngar miðaldagöturnar. Göngum eftir borgarmúrunun og njótum einstaks útsýnis yfir Garfagnanadalinn. Gengið ca 3 tíma. Áður en haldið er til baka á hótelið fáum við okkur góðan hádegisverð í bænum. Hægt að nota síðdegið til að skreppa inn í Castelnuovo eða flatmaga við sundlaugina.Við förum svo með rútu (ca 40 mín) hátt upp Apuan Alpana og snæðum kvöldverð með útsýni yfir fjallatoppan í kring. Ristorante Ceragetta https://www.ristorantelaceragetta.com/
Sjöundi dagur frjáls dagur.Aðeins morgunmatur innifalinn Hægt er að nota daginn til að fara með lestinni til Lucca og þaðan jafnvel til Pisa. Skoða sig um,versla þar og í bænum okkar Castelnuovo di Garfagnana eða bara slaka á við sundlaugina og njóta síðasta dagsin í Garfagnanadalnum.
Áttundi. dagur heimferðardagur Við þurfum að leggja snemma af stað þar sem flogið verður frá Mílano um 16.30 og því mikilvægt að hafa tímann fyrir sér
Fararstjóri Steinunn Harðardóttir, leiðsögumaður Matteo Zambone
Hámarksfjöldi í ferðina eru 20 manns, lágmark 10

Innifalið
nnifalið:Allur flutningur. gisting 7 nætur,7 morgunverðir,5 kvöldverðir á hótelinu, einn hátíðarkvöldverður á veitingastað, tveir hádegisverðir á veitingastað/sveitabæ , vínsmökkun,og aðgangseyrir í Verucole kastala.
Ekki innifalið
I Ekki innifalið: einn kvöldverður, fjórir hádegisverðir, drykkir og þjórfé fyrir staðarleiðsögumann . Eins manns herbergi 45.000