Grikkland / Santorini
Gönguferð á ævintýraeyjunni Santorini
Steinunn Harðardóttir
Í vinnslu
Verð á mann
Verð auglýst síðar
Þessi ferð er í vinnslu.
Staðsetning
Santorini, Grikkland
Dagsetningar
Dagsetning auglýst síðar
Erfiðleikastig
Léttur taktur
Hópstærð
Allt að 16 manns
Um ferðina
Í þessari spennandi ellefu daga ferð verður flogið til Krítar og lent við Hania, þaðan er ekið til Heraklion og siglt með ferju til Santorini og næstu 7 nætur verður gist þar í bænum Perissa.
Gengið verður upp á eina fjall eyjarinnar Profitis Ilias 560 mys, þar er áhugavert klaustur og útsýni yfir alla eyjuna. Gengið til Akrotiri þar sem tækifæri gefst til að skoða rústir bæjarins sem fór undir hraun í eldgosi um 1700 fyrir krist. Þá verður siglt til eyjarinnar Kameni sem er í miðri öskjunni, eldfjall klifið og farið í bað í heitum lindum.
Santorini (Thera) er 110 kílómetrum norðan við Krít og hefur yfir sér mikinn ævintýraljóma, vegna sérstæðrar sögu, jarðfræði, landslags og bygginga.

Ferðaáætlun
Dagur 1 – Keflavík–Krít. Haldið frá Keflavík um morguninn, komið síðdegis til Hania.
Dagur 2 – Siglt til Santorini. Þaðan með rútu á suðurhluta eyjarinnar til bæjarins Perissa.
Dagur 3 – Emporio–Akrotiri. Ganga: 3–4 tímar.
Dagur 4 – Fjallið Profitis Ilias (560 mys). Gengið 6.5 tíma, hækkun/lækkun 560m.
Dagur 5 – Á sjó og eldfjalli. Bátferð til Kameni, heitar uppsprettur.
Dagur 6 – Fira–Oia. 12 km, 4–5 tímar, hækkun/lækkun 330m.
Dagur 7 – Messavouno–Kamari. Gengið 4 tímar, hækkun/lækkun 365m.
Dagur 8 – Frjáls dagur á Santorini.
Dagur 9 – Santorini–Heraklion með ferju.
Dagur 10 – Frjáls dagur í Heraklion. Knossos, Fornminjasafn.
Dagur 11 – Heimferð frá Hania.

Innifalið
Flug og allur flutningur. Íslenskur fararstjóri. Gisting 9 nætur, morgunverðir.
Ekki innifalið
Hádegisverðir. Þjórfé. Viðbótargjald fyrir eins manns herbergi.