Ítalía / Lazio/Via Appia
Pílagrímaganga í suður frá Róm eftir Via Appia
Steinunn Harðardóttir

Í vinnslu
Verð á mann
Verð auglýst síðar
Þessi ferð er í vinnslu.
Staðsetning
Lazio/Via Appia, Ítalía
Dagsetningar
6.–13. maí 2027
Erfiðleikastig
Miðlungserfiður
Hópstærð
Allt að 16 manns
Um ferðina
Göngu Hrólfar hafa um árabil gengið nokkra áfanga pílagrímaleiðarinnar til Rómar. Það er til íslensk leiðarlýsing fyrir pílagríma frá 1153 eftir Nikulás Bergsson ábóta á Munkaþverá sem nefnist “Leiðarvísir og borgarskipan. Við höfum fylgt þeirri lýsingu eins og unnt er alla leið til Rómar. Frá Lucca til Siena, niður Santi Bernharðsskarðið, yfir Appeninafjöllin niður í Genúaflóann, Frá Luni til Lucca, um Valdorciadalinn. og inn á Péturstorgið í Róm. Nikulás ábóti lét ekki staðar numið við Róm en hélt áfram alla leið til Jerúsalem og gekk síðan aftur heim til Íslands. Hann varð fyrsti ábóti Munkaþverárklausturs árið 1155 og gengdi því starfi þar til hann lést árið 1159. Vorið 2027 ætlar Göngu Hrólfur að halda áfram frá Róm eftir via Appia leiðinni og fylgja enn lýsingum okkar manns. Þetta er sögu- og menningalegur leiðangur um fáfarnar slóðir Rómverja og pílagríma fyrr og nú. Gengið er um 90 til 100 km um eldfjallalandslag, framjá fallegum og djúpum gýgvötnum um fjölmargar rómverskar rústir og minjar, gegnum einstaka miðaldabæi og endað í hinum sögufræga bæ Sezze í Lepini fjöllunum. **Fyrirkomulag ** Farið er um hæðir og hóla á stígum, sveitavegum- og malbiki sérstsaklega inn og út úr bæjunum. Stysti dagurinn er 12 km, og sá lengsti 20 km. og mesta hækkun yfir daginn er 450 m. Þeir sem ganga alla göngudaga þurfa að vera í nokkuð góðu fomi.En enginn þarf að láta langa göngudaga stoppa sig frá þátttöku í ferðinni. Bíll fylgir hópnum, flytur farangur á milli staða og þeir sem þessa óska geta fengið far á næsta gististað upp úr hádeginu. Hádegisverður er á eigin vegum alla dagana en morgunverður og kvöldverður innifaldir. Lágmarksfjöldi er 10 manns hámarksfjöldi 15 manns. Gist er í tveggja manna herbergjum á hótelum eða góðum gistiheimilum. (Ath í einhverjum tilfellum gæti þurft að nota önnur hótel en gefin eru upp í lýsingunni og einu sinni gætu einhverjir þurft að sameinast í þriggja manna herbergi.) Takmarkað framboð er af eins manns herbergjum og þau ekki í boði á öllum hótelunum, kanna þarf það hjá Verdi travel. Í Róm er hægt að bóka eins manns herbergi.
Ferðaáætlun
Dagur 1, 6.apríl. Keflavík -Róm -hlið heilags Sebastians Flogið frá Keflavík til Rómar og lent á Fiumicino flugvelli um 14.30 og ekið með rútu að “San Sebastian” hliðinu í borgarmúrum Árelíanusar. Þar komum við okkur fyrir á hótel Hotel Romoli https://romolihotel.com eða öðru sambærilegu hóteli. Eftir að staðarleiðsögumenn okkar Matteo og Gabriele hafa kynnt dagskrá næstu daga förum við í stutta göngu meðfram borgarmúrnum sem var reistur á árunum 271–275 e.Kr. undir stjórn Árelíanusar keisara. Upprunaleg lengd múrsins var um 19 km og umkringdi hann um 1.400 hektara svæði, enn standa 12.5 km. Kvöldmatur á hótelinu eða veitingastað í nágrenninu.
Dagur 2,7.apríl : Hlið Heilags Bastíans - Santa Maria delle Mole-Marno.18 km
Hækkun/lækkun180 m / -80 m gengið ca.5 tíma Við höldum frá hliði heilags Sebastians þar sem “Via Appia antica” hefst. Rómverjar lögðu vegi frá Róm til allra átta, sá mikilvægasti Via Appia sem tengir Róm við Brindisi fór á heimsminjaskrá UNESCO árið 2024. Vegagerðin hófst árið 312 f.Kr. að frumkvæði Appiusar Claudiusar Caecusar og var vegurinn ætlaður fyrir herflutninga og vistir í Samnítastríðunum, en varð síðar helsta verslunar- og samgönguleið Rómaveldis til austurs. Við upphaf göngunnar blasir við 12 km bein braut lögð stórum hellusteinum sem eru markaðir djúpum förum eftir umferð aldanna. Meðfram veginum undir skuggsælum regnhlífarfurum eru fjölmörg grafhýsi og katakompur og kirkjan Quo Vadis. Þar er sagt að Pétur, á flótta unda ofsóknum Nerós hafi hitt Jesú upprisinn og spurt „Domine, quo vadis?“ („Drottinn, hvert ferðu?“). Jesús svaraði að hann væri á leið til Rómar til að láta krossfesta sig aftur. Þetta varð til þess að Pétur snéri til baka og var krossfestur. Við heimsækjum San Callisto eða San Sebastiano katakompurnar og göngum gegnum Caffarella garðinn á leið til Santa Maria delle Mole. Þar gistum við á Domus Bethaniae - Marino (https://ospitalitareligiosa.it/strutture/ad/ domus-bethaniae-marino,6596) eða Í sambærilegri gistingu. Kvöldverður á hótelinu
Dagur 3, 8.apríl Santa Maria delle Mole til Nemi 16 km Hækkun/lækkun +450 m / -200 m gengið ca 5.30 tíma Við göngum eftir þægilegum stígum upp til Castel Gandolfo í Albanhæðunum. Þar er fyrrum sumarhöll páfa sem var reist á 12. öld af Gandolfo fjölskyldunni en komst í eigu páfastóls á 17.öld. Í Síðari heimstyrjöldinni hýsti höllin 1200 flóttamenn sem flúðu stríðið en nú er þar safn. Bærinn tilheyrir Castelli Romani (Rómversku köstulunum) sem eru hæðabæir í Lazio. Þetta hæðótta eldfjallalandslag er nú friðland og vinsæll sumarleyfisstaður Rómverja sem flýja sumarhitann. Þarna eru gýgvötn eins og Nemi og Albanovatnið sem er það dýpsta á Ítalíu170 m. Í frjósömum eldfjallajarðveginum er mikil vínrækt m.a. i bæjunum Velletri, Frascati og Matono. Leið okkar liggur meðfram eldgýgum og um skuggsæla skóga til bæjarins Albano Laziale. Þar má sjá fornt hringleikhús, grafir og böð sem og glæsilvillu Pompey’s og forna griðarstóra vatnsgeyma, þá einu sem enn eru nýttir. Leiðin til bæjarins Nemi liggur skammt frá hofi gyðjunnar Díönu þar sem sagt er að Rómulus hafi fæðst. í þessum litla bæ (2000 íbúar) gistum við væntanlega á nokkrum stöðum í svokölluðu Albergo Diffuso Locanda Specchio di Diana https:// www.specchiodidiana.it/. Kvöldverður á hótelinu eða veitingastað í nágrenninu.
Day 4, 9. apríl Nemi til Velletri, gengið 12 km. hækkun/lækkun: +220 m / -380 m | gengið~ 3h 45 tíma Framundan er stuttur göngudagur og því tími til að skoða sig um í Nemi sem þýðir skógur. Frá bænum er frábært útsýni yfir Nemivatnið og fallegt umhverfið. Bærinn er þekktur fyrir villta sveppi og jarðaber og jarðaberjahátíðina sem þar er haldin. Þekktir listamenn hafa fengið innblástur í Nemi, má þar nefna HC Andersen, Göthe og Byron sem nefnir bæinn í kvæði “Children Harolds pilgrimage.” Á leiðinni frá Nemi til Velletri er farið framhjá lítilli kirkju sem á einstaka mynd af Kristi á krossinum. Leiðin liggur niður gegnum fallegan skóg og þegar komið er í bæinn er farið um Napoletana hliðið inn í sögulega hlutann. Þar getur að líta Trivio turninn,biskupa höllina og kirkju heilags Clements sem minnir á borgarmúra en hún er reist á Rómverskum rústum. Síðdegis förum við í stutta gönguferð um bæinn og brögðum á víni staðarins Velletri DOC. Gisting Hotel Benito al Bosco https://www.benitoalbosco.com/it/benito-albosco /eða Falco Eco http://falcoeco.com/ .Matur á hótelinu eða veitingahúsi í nágrenninu.
Dagur 5, 10.apríl Velletri → Cori gengið 19 km hækkun/lækkun +380 m / -420 m gengið 5h 30' tíma. Við yfirgefum Castelli Romani svæðið og höldum um ólífulundi, vínekrur og litla sveitavegi að rótum Lepini fjallanna til bæjarins Cori sem stendur uppi á hæð og gnæfir yfir umhverfi sínu. Þar má finna fornminjar frá 6.-1 öld fyrir Krist en bærinn er að mestu frá 7.öld. Við skoðum hinn gríðarmikla “Cyclopean” vegg, hof Herkúlesar, hof Castors og Polux og rómversku brú. Við gistum á sögulegum vínbúgarði, brögðum á framleiðslunni og njótum hefðbundisn kvöldverðar. Cincinnato Wine Resort (Cori) https://www.cincinnato.it/
Dagur 6, 11 apríl Cori - Sermoneta gengið 20 km Hækkun/lækkun +350 m / -320 m gengið ca 5h 45 Þetta er einstaklega falleg leið sem liggur meðfram hlíðum Lepini fjallanna og gegnum friðlandið umhverfis Giulianello vatnið. Eftir um 12 km göngu er komið til Norma, Þar getur verið gott að stoppa í hádeginu og jafnvel heimsækja súkkulaðisafn eða einstaklega áhugaverðan fornmynjagarð “Ancient Norba” sem bærinn státar af. Þegar komið er til Sermoneta er líka margt að skoða. Þetta er einstaklega fallegur og vel varðveittur miðalda bær og yfir honum gnæfa Caetani kastalinn og Collegiate kirkja Santa Maria Assunta. Kirkja er reist yfir fornt hof gyðjunnar Cybele. Gisting Foro Appio Mansio Hotel http://www.foroappiohotel.it/ kvöldverður á hótelinu.
Dagur7, 12 apríl Sermoneta → Sezze gengið12 km | Hækkun +310 m / -180 m ,gengið 3h 45' Síðasti göngudagurinn endar í bænum Sezze, sem á dögum Rómverja hét Setia. Að sögn var hann stofnaður af Herkulesi eftir sigur hans yfir Laestrygones risunum sem réðust á hann á heimleið með nautgripi Gerýosar sem hann sótti í 10. þrautinni. Þessir risar sem átu stóran hluta af áhöfn Ódyseifs eru sagðir hafa búið í í Lasio. Við förum framhjá rómverskum rústum og glæsihúsum og njótum frábærs útsýnis yfir Pontine sléttuna. Við skoðum gamla miðbæ Sezze og skjaldamerki bæjarins sem er Nemean ljónið sem Herkúles drap í fyrstu þrautinni af þeim tólf sem Evrýsþeifur konungur setti fyrir hann. Herkúles bar síðan feld ljónsins um axlirnar. Sögulegi bærinn Setia er nefndur á 5 öld. Þá bjó þar Volskana fólk. Bærinn varð Rómversk nýlenda árið 382 BC og efldist og vegna legu Appiavegarins. Hann varð þekktur fyrir glæsilegar villur og Cisero hrósaði víni bæjarins. Það er við hæfi að enda ferð okkar um Via Appia í bæ sem blómstraði vegna tilkomu vegarins. Við kveðjum þetta svæði með hátíðarkvöldverði á hótelinu. Gisting og kvöldverður : Ristorante Albergo Santuccio https://www.ristorantesantuccio.it
Dagur 8 13 apríl: Sezze Fumicino flugvöllur og Keflavík Eftir morgunverð förum við með rútu á flugvöllin og fljúgum heim kl 15.45.

Innifalið
Flug og allur flutningur. Íslenskur fararstjóri og staðarleiðsögumaður og bílstjóri/leiðsögumaður alla göngudagana og bílstjóri Gisting 7 nætur, 7 morgunverðir, 7 kvöldverðir. Flutningur á farangri og akstur milli staða eða hluta göngu leiðarinnar fyrir þá sem vilja. Vínsmökkun, heimsókn í katakoppu og heimsókn í kastala í Sermoneta.
Ekki innifalið
Ekki innifalið: Hádegisverðir alla dagana (hægt verður að kaupa nesti á morgnana ,gistináttagjald og þjórfé fyrir staðarleiðsögumann og leiðsögumann/bílstjóra.