Göngu-HrólfurGÖNGUFERÐIR MEÐ GÓÐUM FÉLÖGUM
Yndisgönguferð á Majorka

Spánn / Majorka

Yndisgönguferð á Majorka

Steinunn Harðardóttir

Í vinnslu

Verð á mann

Verð auglýst síðar

Þessi ferð er í vinnslu.

Staðsetning

Majorka, Spánn

Dagsetningar

Dagsetning auglýst síðar

Erfiðleikastig

Léttur taktur

Hópstærð

Allt að 16 manns

Um ferðina

Rithöfundurinn Gertrude Stein, sem dvaldi sumarlangt í bænum Deià á norðurströnd Mallorca, sagði að þessi staður væri paradís sem sleppti ekki takinu á manni fyrr en yfir lyki.

Dvalið verður í fallega hafnar- og strandbænum Port de Sóller, einum af perlum norðurstrandar Mallorca. Frá bænum förum við í fjölbreyttar og léttar gönguferðir (7–10 km) um appelsínulundi, ólívugróðir og fallega fjallastíga.

Ferðaáætlun

Dagur 1 – Flug til Mallorca með millilendingu í Kaupmannahöfn.

Dagur 2 – Sveitavegur til Port de Sóller. Ganga: 7–10 km.

Dagur 3 – Sa Calobra og Torrent de Pareis. Bátferð.

Dagur 4 – Fornalutx og Biniaraix. Ganga: ~10 km.

Dagur 5 – Deià og Cala Deià. Ganga: 5–6 km.

Dagur 6 – Ólífulundir og vitinn. Ganga: ~7 km. Hátíðarkvöldverður.

Dagur 7 – Frjáls dagur.

Dagur 8 – Heimferð.

Innifalið

Flug og allur flutningur. Íslenskur fararstjóri. Gisting 7 nætur, morgunverðir og kvöldverðir.

Ekki innifalið

Hádegisverðir. Þjórfé. Viðbótargjald fyrir eins manns herbergi.

Myndir úr ferðinni