Toscana, Ítalía / Garfagnana, Toscana
Fjallastígar Garfagnanadalsins í Toscana
Steinunn Harðardóttir, Matteo Zamboni
Í vinnslu
Verð á mann
Verð auglýst síðar
Þessi ferð er í vinnslu.
Staðsetning
Garfagnana, Toscana, Toscana, Ítalía
Dagsetningar
29. maí – 6. júní 2027
Erfiðleikastig
Miðlungserfiður
Hópstærð
Allt að 16 manns
Um ferðina
Þessi gönguferð er sannkallað ævintýri. Gengið er um mjög fallega náttúru og fræðst um svæðið á persónulegan hátt. Farið er í heimsókn til vina staðarleiðsögumannsins Matteo og bragðað á afurðum dalsins bæði mat og víni. Þá er einnig fræðst um safran- og bíódínamíska ræktun.
Garfagnana er skógivaxinn dalur sem kúrir milli Apenninafjallana og Apuan Alpanna nyrst í Toscana. Um miðja síðustu öld voru miklir fólksfluttningar úr dalnum og því hafa þorpin þar lítið breyst frá miðöldum. Nú er lögð áhersla á að varðveita þá ásýnd. Engar stórar hótelbyggingar eru leyfðar, aðeins sveitagistingar og lítil gistiheimili. Garfagnana er skógivaxinn dalur sem kúrir milli Apenninafjallana og Apuan Alpanna nyrst í Toscana. Um miðja síðustu öld voru miklir fólksfluttningar úr dalnum og því hafa þorpin þar lítið breyst frá miðöldum. Nú er lögð áhersla á að varðveita þá ásýnd. Engar stórar hótelbyggingar eru leyfðar, aðeins sveitagistingar og lítil gistiheimili. -Garfagnana þar sem tíminn flýgur ekki frá þér-. eru einkunarorð Garfagnanabúa enda er mikil ró yfir öllu og lítið af erlendum ferðamönnum.
Kynntu þér málið og komdu með okkur í drauma gönguferð í Toscana
FERÐATILHÖGUN:
Göngu Hrólfur fór í fyrstu Garfagnana ferðina fyrir um 25 ár. Þá var gist í fjallaskála í Puntadodalnum í Apuan ölpunum. Nú er gist í hótelum og gistiheimilum en farið í heimsókn í Puntatodalinn. Gist er í fjallabænum Corfino sem er í útjaðri Orecchiella-friðlandsins. Þar er gengið upp á bæjarfjallið Pania di Corfino og gamlar fjárhirðabyggðir heimsóttar. Síðan er gist á góðu hóteli í bænum Castelnuovo og gist þar tvær og þaðan farið til bæjarins Barga sem valinn hefur verið fallegasti miðaldabær Ítalíu og gengið þaðan um fallegar sveitir og bændur heimsóttir. Einnig er farið til Borgo a Mozzano og gengið til vínræktarbúgarðsins Macea og bragðað á framleiðslunni. Þá er einn hádegisverður á mjög sérstæðum veitingastað Il Veccio Mulino í bænum Castelnuovo di Garfagnana. Síðasti gististaðurinn er „La Ceragetta resort“ hátt í fjöllum Apuan Alpanna í eyðiþorpinu Capanne di Careggine. Þar er hvert hús eitt eða fleiri hótelherbergi. Þaðan er gengið í eyðidalinn Puntado.
Garfagnanadalurinn í Toscana – umsögn júní 2026 / Jónína Pálsdóttir
Ég hef farið í svo margar ferðir til Ítalíu með Göngu-Hrólfi að Matteo, ítalski staðarleiðsögumaðurinn, hafði orð á fjölda ferða minna með þeim Steinunni.
Í vor tók ég þátt í dásamlega öðruvísi ferð með þeim um fáfarnar slóðir í Garfagnanadalnum. Ótrúlega fjölbreytt ferð þar sem við dvöldum fyrst í litlum bæ í 800 m.h.y.s. og þaðan var farið í fjallgöngur. Síðan færðum við okkur neðar í dalinn og þar voru dagarnir allt öðruvísi. Gengið á láglendi og bændur í héraði heimsóttir og við vorum frædd um alls konar ræktun. Mjög áhugavert að fræðast um saffran ræktun, einnig var farið á búgarð, sem stundar biodynamic ræktun. Allir tóku svo vel á móti okkur og við fengum að smakka alls konar góðgæti. Þarna nutum við þess að Matteo er greinilega góður vinur allra í héraðinu. Síðustu dagana dvöldum við í eyðiþorpi í Apuan Ölpunum þar sem tíminn stóð í stað og veitingarstaðurinn, sem við borðuðum á síðustu tvö kvöldin er ógleymanlegur. Hann stóð hátt upp í hlíð og útsýnið niður í dalinn magnað.

Ferðaáætlun
Dagur 1 – Keflavík–Corfino. Flogið til Mílanó, ekið til Corfino (860m).
Flogið er frá Keflavík og lent á flugvellinum í Mílanó síðdegis. Síðan er ekið eins og leið liggur til þorpsins Corfino (860m), um 4 tíma ferð. Af torgi bæjarins er frábært útsýni yfir Garfagnanadalinn en það skoðum við jafnvel síðar. Við komum okkur vel fyrir á hótel Panoramico í Corfino, fáum þar góðan kvöldverð og gistum næstu þrjár nætur:
Dagur 2 – Corfino til Campaiana. Gengið 6 tíma, hækkun/lækkun 600m.
Þorpið Corfino er í útjaðri friðlandsins Orecchiella við rætur fjallsins Pania di Corfino (1606m). Eftir morgunverð er haldið frá hótelinu að fjallinu og eftir fornum stígum fjárhirða sem fluttu hjarðir sínar upp á fjallsengin á vorin. Þeir bjuggu í fjárhirðaþorpinu Campaiana yfir sumarið og gættu hjarðarinnar. Þar á engjunum breiðum við úr dúknum og snæðum ljúffengan lautarverð sem fararstjórinn hefur keypt og við borið sameiningu. Eftir matinn er haldið aðra leið til baka. Gengið er meðfram árfarvegi um beiki og kastaníuskóg og framhjá hinum spennandi brunni Fonte dell ‘Amore. Gengið er í um sex klukkustundir. Hækkun 600m, lækkun 600m . Kvöldmatur á hótelinu.
Dagur 3 – Pania di Corfino (1606m). Gengið 6 tíma, hækkun/lækkun 750m. Einstakt útsýni
.Í dag er haldið frá La Baita að fjárhirðaseljunum í Pruno, en þeim hefur nú verið breytt í sumarhús. Þarna undir vesturhlíðum fjallsins Pania di Corfino í útjaðri Orecchiella - friðlandsins virðast fjallshlíðarnar ókleifar. En í skriðunum leynist skemmtilegur stígur upp á fjallið sem við leitum uppi og höldum alla leið upp á topp (1606m). Þaðan er einstakt útsýni yfir Garfagnanadalinn og yfir til Apuan-alpanna. Eftir ljúffengan lautarverð er haldið niður af fjallinu eftir þægilegum stíg sem er umvafinn björtum beykitrjáum. Gengið í um sex klukkustundir. Hækkun og lækkun um 750. Kvöldmatur á hótelinu
Dagur 4 – Castelnuovo og Mont Alfonso og Vecchio Mulino.
Það er komin tími til að yfirgefa Corfino en við byrjum morguninn á að fara í stutta skoðunarferð um bæinn og fræðast um sögu hans og bæjarlífið. Síðan er haldið til “Castelnuovo” sem er aðal verslunar- og viðskiptamiðstöð dalsins. Farangrinum er ekið á hótelið okkar La Lanterna þar sem við gistum næstu tvær nætur. Við förum hins vegar beinnt í bæinn, skoðum okkur um og getum jafnvel verslað smá áður er haldið er á hinn sérstæða veitingastað “Il Vecchio Mulino” (Gamla myllan). Þar fáum við að bragða á framleiðslu héraðsins. Eftir ljúffenga máltíð höldum við heim á hótel en hittust aftur um fimmleitið og göngum upp að Fortezza di Mont'Alfonso. Þetta er sögufrægt miðaldavirki sem gnæfir yfir aðaltorginu Piazza Umberto I, og er helsta kennileiti hans. Gengin er 6 til 7 km hringur umhverfis kastalann um 210 metra hækkun. Að gönguferðinni lokinni förum við aftur gegnum bæinn og svipumst um eftir áhugaverðum veitingastað/stöðum því að þessu sinni er kvöldverðurinn á eigin vegum.
Dagur 5 – Dalurinn umhverfis Barga. Vínsmökkun og saffranfræðsla. Gengið ~14 km, ~4-5 tímar..
Við höldum snemma dags með rútu til hins fallega miðaldabæjar Barga (45 mín akstur). Fyrir nokkru veitti„The Italian Touring Club“ bænum appelsínugulan fána sem tákn um að hann væri besti miðaldabær á Ítalíu. Við byrjum á að fara í stutta gönguferð um Barga og að kirkju San Cristoforo sem er merkilegusta miðaldakirkju svæðisins. Síðan höldum við eftir þægilegum stígum um sveitirnar umhverfis Barga og fræðumst um þetta fallega og sögufræga hérað. Á leiðinni er stoppað á sveitabæjum þar sem við fáum upplýsingar um saffran ræktun, njótum léttra veitinga og brögðum á vínframleiðslu staðarins. Þegar líður á gönguna sést til Apuan Alpanna sem ramma Garfagnanadalurinn af í suðri en í norðri er svo Appenína-fjallgaðurinni. Síðar í ferðinni liggur leiðin yfir í Apuan Alpana sem eru spennandi kalksteins- og marmarafjöll með mörgum frægum marmaranámum. Gengið ca.4 -5 tíma hækkun og lækkun um 400 m. Að göngu lokinni er okkur ekið á hótelið í Castelnuovo
Dagur 6 – Borgo a Mozzano, djöflabrúin. Vínsmökkun á Macea. Ekið til Capanne di Careggine..
Haldið með rútu til Borgo a Mozzano sem er í neðri hluta Garfagnanadalsins. Þar skoðum við hina einstöku djöflabrú, Il Ponte del Diavolo, sem á að hafa verið reist með hjálp djöfulsins. Haldið er gegnum bæinn framhjá fallegri millu og kirkju að vín- og ólífubúgarðinum Macea. Þar stunda miklir hugsjónamenn lífræna ræktun af eldmóð. Vínið er unnið úr sérstökum þrúgunum og einstaklega gott. Við fáum að bragða á því með léttri máltíð. Eftir notalega heimsókn er hópnum ekið upp í eyðiþorpið Capanne di Careggine sem er í hjarta Apuan Alpanna. Þar hefur nokkrum húsanna verið breytt í skemmtilegt gistiheimili. Góð aðstaða er í húsunum og íbúarnir snæða þar morgunmat en kvöldmatur verður á veitingastað skammt frá. Þeir sem vilja geta tekið sundsprett fyrir matinn. Þægileg ganga 2-3 tímar hækkun ca.200m. Gist: La Ceragetta resort https://www.casevacanzalaceragetta.it/
Dagur 7 – Puntato hringur. Isola Santa, Col di Favilla, Rifugio La Quiete. Gengið ~6 klst, hækkun/lækkun 800 Við höldum gangandi niður úr þorpinu að vatninu Isola Santa, það er í raun uppistöðulón því fyrir um 60 árum var þorpinu Isola Santa sökt vegna stíflugerðar. Eftir að hafa skoðað okkur um og fræðst um sögu staðarins er haldið upp í móti og stefnt á annað eyðiþorp Col di Favilla. Það er sérstætt að sjá hvernig hrunin og yfirgefin h.úsin standa á mjóum fjallshrygg. Brátt erum við komin inn í úfið landslag kalksteinsfjallanna þar sem finna má fjölmargar marmaranámur, kastaníu- og beikiskóga, gömul engi og merki um fornan seljabúskap. Lokatakmark okkar er dalurinn Puntato sem er í 1000 metra hæð. Þar dvöldu áður um 400 manns á sumrin með búfé sitt. Nú eru sum húsanna nýtt sem sumarhús og fjallaskálar. Við göngu framhjá einum þeirra Rifugio La Quiete. Á hæð, við kirkju staðarins breiðum við úr dúknum og njótum sérstæðs andrúmslofts staðarins. Síðan er haldið til baka framhjá gömlum marmaranámum og millu að Isola Santa og síðan upp til Ceragetta, Göngutími ca 6 klst. Hækkun /lækkun 800 m lengd 10 km.
Dagur 8 – Heimferð frá Mílanó.

Innifalið
Allur flutningur. 7 morgunverðir, 6 kvöldverðir, 3 hádegisverðir á veitingastað, 3 piknik hádegisverðir. 2x vínsmökkun, 1x kynning á saffranræktun. Íslenskur fararstjóri og staðarleiðsögumaður.
Ekki innifalið
Einn kvöldverður, drykkir og þjórfé fyrir staðarleiðsögumann.