Gönguferð á ævintýraeyjunni Santorini 9.-20.sept. 2022
Gönguferð á Santorini og Krít 9.-20.okt. 2022 Í þessari spennandi tólf daga daga ferð verður flogið til Krítar og gist þar eina nótt. Síðan ekið til Heraklion og siglt með ferju til Santorini þar sem gist verður í bænum Perissa í 7 nætur. Gengið verður upp á eina fjall eyjarinnar Profitis Ilias 560 mys, þar er áhugavert klaustur og útsýni yfir alla eyjuna. Gengið til Akrotiri þar sem tækifæri gefst til að skoða rústir bæjarins sem fór undir hraun í eldgosi um 1700 fyrir krist. Þá verður siglt til eyjarinnar Kameni sem er í miðri öskjunni, eldfjall klifið og farið í bað í heitum lindum. Einnig verður gengið frá höfuðstaðnum Fira til Oia sem er einn fallegasti bærinn á eyjunni, þar eru hvít hús sem hafa verið byggð inn í klettana, hvítar kirkjur ,blá þök, og stórkostlegu útsýni yfir öskjuna. Síðasta gangan á Santorini er til hinar fornu Dórísku borgar Thiru, þar sem áhugaverður fornleifauppgröfur verður skoðaður. Að lokum er hægt að slaka á ströndinni eða kynna sér mannlífið á frjásum degi á Santorini. Síðan er haldið til baka til Krítar og Hanía. Eftir hvíldardag þar er farið í spennandi gönguferð í nágrenni Hanía framjá þremur ólíkum klaustur og niður að sjó gegnum undurfallegt gil. Santorini (Thera) er 110 kílómetrum norðan við Krít og hefur yfir sér mikinn ævintýraljóma, vegna sérstæðrar sögu, jarðfræði, landslags og bygginga. Santorini sögð geyma leyndarmálið um hið horfna Atlantis. Eyjan er í raun það sem eftir er af eldfjalli sem sprakk fyrir 3600 árum og eyddi byggð á svæðinu. Þá myndaðist stór vatnsfyllt askja umlukin mörg hundruð metra háum öskulögum. Þetta er eitt stæsta eldgos sem skráð hefur verið og flóðbylgjan sem því fylgdi hefur haft áhrif á endalok Minoa menningarinnar á Krít. Sumir telja þetta eldgos grunnurinn að goðsögninni um Atlantis.
Dagur 1
Haldið frá Keflavík um morguninn og komið síðdegis til Hania þar sem gist er næstu nótt á hótel Nefeli eða sambærilegu hóteli. Kvöldmatur í nágrenni við hótelið. www.nefelihotel.com
Dagur 2 Siglt til Santorini.
Haldið snemma um morguninn frá Hania til Heraklion, þaðan með ferju til Santorini og síðan með rútu á hótel í bænum Perissa sem er við sjóinn á suð austur hluta eyjarinnar. Gistiheimili og hótel á svæðinu eru lítil og fjölskyldurekin. Við gistum á 1-2 hótelum, Pevlos villa og Best hotel. Morgunmatur á hótelinu og kvöldmatur á veitingahúsi í nágrenninu. www.phevosvilla.gr www.thebest-santorini.gr
Dagur 3 - Emporio-Akrotiri. Við göngum frá hótelinu til Emporio sem er einstaklega fallegur og vel varðveittur bær með gömlum þröngum götum. Efst á hæðinni sem hann stendur við eru borgarmúrar og er mjög gaman að skoða húsin innan þeirra, þau eru margra alda gömu. Eftir skoðunarferð um bæinn er haldið yfir mjög sérstæða vínakra þar sem vínviðurinn myndar eins og stór hreiður. Á leiðinni til bæjarins Akrotiri er frábært útsýni til öskjunnar og á háar klettabrúnirnar sem eru lagskiptar í óteljandi litbrigðum. Í Akrotiri var blómlegt menningarsamfélag um 3000 fyrir krist, hellulagðar götur og þróað holræsakerfi. Þegar Santorini gaus um 1700 fyrir krist lagðist þykkt öskulag yfir bæinn. Hluti hans hefur verið grafinn upp og gerður aðgengilegur ferðamönnum. Þeir sem vilja geta fengið tíma til að skoða þennan einstaka stað. Frá Akrotiri er haldið að sérstæðri strönd með rauðum sandi, stundum gefst tækifæri til að taka þar sundsprett. Síðan er ekið með rútu heim til Perissa. Gengið ca 4 tíma lítil hækkun og lækkun.
Dagur 4 Fjallið Profitis Ilias
Þennan dag er haldið frá Perissa til gömlu Tiru og upp á hæsta fjall eyjarinnar Profitis Ilias (560mys) að klaustrinu sem er á toppnum. Af fjallinu er útsýni yfir alla eyjuna.
Síðan er haldið niður eftir steinlögðum stíg (calderimi) til bæjarins Pyrgos sem er umlukinn borgarmúrum. Þar á torginu er turn frá Ottomantíanum. Eftir hádegismat í bænum er hægt að fá far heim á hótel . Annars er genginn rúmur klukkutími í viðbót og haldið um vínekrur og einstaklega fallegt lítið gil um útjaðar bæjarins Emporio og heim á hótel . Gengið 6.5 tíma hækkun/lækkun 560m
Dagur 5 Á sjó og eldfjalli
Haldið er með bát til eldfjallaeyjarinnar Kameni sem er í miðri öskju Santorini. Eftir göngu upp í gýg eldfjallsins sem gaus síðast 1950 er siglt að eyjunni Litlu Kameni og þeir sem vilja geta hoppað í sjóinn af bátnum og synnt að heitum uppsprettum sem eru við ströndina. Að lokum er haldið til eyjarinnar Thirassia þar sem gaman er að skoða skemmtilegt þorp sem stendur á klettabrúninni. Þaðan er einstakt útsýni yfir á appelsínugular brúnir gýgsins sem er beint á móti. Gengið 2 tíma hækkun/lækkun 200m
Dagur 6 Fira-Oia
Ekið er til bæjarins Fira sem er höfuðstaður eyjarinnar og gengið eftir brún öskjunnar til bæjarins Oia sem af mörgum er talinn fallegasti bær Santorini. Þaðan blasir við stórkostlegt útsýni til sjávar og yfir hvít hús með bláum þökum sem standa á öskjubrúninni, áberandi er hefðbundinn byggingastíll, fjölmörg kaffi-og veitingahús og litlar verslanir. Við gefum okkur góðan tíma í Oia og bíðum eftir sólarlaginu. Það er gaman að fylgjast með því frá kastalarústum í bænum. Eftir kvöldverð er ekið til baka og komið á hótel milli 22-23 Gengið um 4 tíma hækkun/lækkun 330m
Dagur 7 - Messavouno-Kamari Í dag höldum við gangandi frá hótelinu til gömlu Thira, fornbæjar sem stofaður var af Dórium á 8. öld.f.kr. Síðar bjuggu þar afkomendur Alexaders mikla. Við skoðum fornleifauppgröftinn sem er efst á fjallinu Messavouno (369m) og höldum svo niður til bæjarins Kamari og þaðan með bát til Perissa. Gengið 4 tíma hækkun/lækkun 365m
Dagur 8 Frjáls dagur á Santorini, hádegis og kvöldmatur ekki innifalinn
Dagur 9 - Santorini- Hania Haldið með ferju til Heraklion og síðan til Hania þar sem gist er næstu tvær nætur. Hádegismatur ekki innifalinn. www.nefelihotel.com
Dagur 10 Frjáls dagur í Hania, hádegis og kvöldverður á eigin vegum. Það getur verið gaman að bregða sér í rútu og bátsferð á Balos ströndina en þar er einstaklega falleg túrkisblátt lón.
Dagur 11 Þrjú ólík klaustur og Katholiko gilið. Gilið Katholiko er stundum kallað vatnsveita dýrðlinganna. Það er á norðanverðum Akrotiri skaganum og skammt frá Hania. Gangan þangað hefst við Profhetes Elias en þaðan er einstakt útsýni til borgarinnar. Þarna börðust Krítverskir uppreisnarmenn fyrir frelsi frá Tyrkjum árið 1897. Leiðin liggur um litrík þorp áður en komið er að klaustrinu Agia Trinida. Það var stofnað á 16. öld af tveimur Feneyskum munkum og er enn stæsta klaustur Krítar. Þá liggur leiðin að katþólska klaustrinu Gouverneto sem er frá 1537. Vegna legu sinnar nálægt sjónum hefur það orðið fyrir fjölmörgum árásum sjónræningja og líkist virki. Síðan er haldið að hinu yfirgefna Katholikon klaustri sem er byggt utan í klettavegginn og þaðan um einstalega fallegt gil niður að sjó og upp aftur . Gengið um 3 tíma, 7-8 tíma ferð, hádegisnesti innifaliðnen ekki kvöldverður.
Dagur 12 Brottfarardagur morgunmatur innifalinn ekki hádegismatur. Flogið frá Hania til Íslands síðdegis.
Innifalið: Flug, gisting, allur flutningur,íslensk fararstjórn og staðarleiðsögumaður göngudagana. Allur matur göngudagana. Hádegismatur ekki innifallin 9.dag þegar farið er frá Santorini til Krítar og aðeins morgunmatur innifalinn frídag á Santorini og frídag og ferðadag í Hania. 11 dag er hádegisnesti innifalið en ekki kvöldmatur.
Ekki innifalið: máltíðir sem hafa verið nefndar, ferðamannaskattur 1.50 evrur á herbergi hverja nótt. Þetta gjald þarf að greiða hótelinu á staðnum. Tips til staðarleiðsögumanns og fl.
Umsagnir:
- dásamlegar minningar." "Frábær ferð, fór í fyrra og mæli með henni" "Ævintýralega skemmtilegt. Langar aftur." "Mæli með þessari frábæru ferð"