Santi Bernardsskarðið og Aostadalurinn-pílagrímaganga. 24.-31 ágúst 2020
Santi Bernardsskarðið og Aostadalurinn-pílagrímaganga 24.-31 ágúst 2020
Undanfarin ár hafa Göngu Hrólfur og Vita Sport boðið upp á gönguferðir um hluta pílagrímaleiðarinnar til Rómar. Magnús Jónsson sagnfræðingur hefur leitt þessar ferðir og hafa íslenskir gönguhópar fylgt honum frá Lucca til Siena og síðan áfram til borgarinnar eilífu Rómar. Nú vendum við okkar kvæði í kross og höldum upp í Alpana og hefjum gönguna í hinu þekkta Sankti Bernharðsskarði. Þar er Via Francigenaleiðin hálfnuð og þar er hæsti hluti hennar. Árið 990 lýsti Sigeric erkibiskup af Kantaraborg áfangastöðum sínum á göngu til Rómar. Leið hans sem liggur frá Englandi gegnum Frakkland, Sviss og Ítalíu hefur verðið kölluð Via Francigena. Hún er 1700 km. og 89 áfangar ef gengnir eru 20 km á dag. Í Sviss mætir hún leið Nikulásar ábóta frá Munkaþverá “Munkaþvérárleið” sem við erum að fylgja. Nikulás gekk til Rómar frá Íslandi og lýsti leiðinni í ritinu “Leiðarvísir og borgarskipulag” árið 1154. Þar segir hann: “frá Máritinusarborg eru tvær dagleiðir til Bjarnarðsspítala,(St Bernharðsskarð) hann er kominn á fjall upp….Þá er Ágústa(Aosta) góð borg” Við hefjum gönguna á hæsta hluta leiðarinnar í 2473 metra hæð og gistum á hosteli sem var stofnað á 11.öld af Saint Bernard d’Aoste og hefur hýst pílagríma á leið til Rómar síðan. Staðurinn er þekktur fyrir björgunarhundana sem enn eru tákn Sviss. Úr skarðinu liggur leiðin niður í Aosta dalinn og í höfuborg svæðisins Aosta sem er krýnd einstökum fjallatindum. Í Aosta er fjöldi rómverskra minja sem gaman er að skoða. Leiðin liggur meðfram áveituskurðum,vínökrum og köstulum og eftir fornri rómverskri leið. Síðasti áfangastaðurinn er borgin Ivera í Pietmonte héraðinu. Gistingin er bæði í pílagrímagistingum með 3-6 manna herbergjum og á hótelum með tveggja manna herbergjum. Hádegisverður á eigin vegum alla dagana. Farangur er fluttur milli staða og bíll fylgir hópnum svo ekki þarf alltaf að ganga alla dagleiðina.
Fyrsti dagur 24.8.2020 Keflavík -Milano -St.Bernharðsskarð Flogið frá Keflavík til Mílano og ekið beint upp i Sankti Bernharðsskarðið, um fjögurra tíma akstur. Komið á áfangastað um eða eftir miðnætti og gist í Auberge de l'Hospice https://www.aubergehospice.ch/chambres/
Annar dagur 25.8.2020 St. Bernarðsskarðið- Etroubles (12Km) Við tökum það rólega um morgunin og skoðum „Museum of Hospice“ safn og sýningu um gistiheimilið sem var stofnað á 11.öld til að hýsa pílagríma við skoðum líka táknrænt skarð frá Norður Evrópu yfir Alpana á leið til Rómar. Við erum í um 2500 metra hæð yfir sjávarmáli og allt um kring blasir við einstakur fjallahringur. Við njótum fegurðar fjallanna áður en gangan hefst. Haldið er niður dal í áttina að þorpinu Etroubles sem er í 1280 metra hæð. Þetta er þægileg ganga og brattinn er ekki mjög mikill. Gist í Etroubles. Gangan tekur um 5-6 tíma og lækknunun er 1200 m á 12 kílómetrum. Hádegiverður piknik á eigin vegum. Gisting og kvöldmatur í Etroubles. https://www.affittacamerelabri.it/ostello
Þriðji dagur 26.8 2020 Echevennoz-Aosta (17Km) Við höldum áfram göngunni niður dalinn og tökum eftir breytingum sem verða á gróðri og landslagi þegar neðar er komið. Leiðin liggur meðfram svokölluðum „rus“ litlum áveituskurðum sem leiða vatn niður fjöllin til að vökva ávaxtatré neðar í dalnum. Göngunni lýkur í Aosta sem er höfuðborg þessa svæðis. Þar má finna mjög mikið af minjum frá tímum Rómverja sem við skoðum að sjálfsögðu. Gist á hóteli í bænum. Gengið 5 tíma, lækkun 750 metrar á 17 km. Piknik hádegisverður á eigin vegum, kvöldmatur og gisting http://www.hotelbellepoqueaosta.it
Fjórði dagur 27.8.2020 Meðfram Dora ánni 20 km. Til að stytta langan dag og spara okkur malbiksgöngu tökum við lest frá Aosta til bæjarins Nus. Þar hefjum við gönguna þar sem fylgt er hægri bakka árinnar Dora. Á leiðinni er farið framjá vínekrum og kastölum sem segja má að séu aðal þema dagsins. Göngunni lýkur í bænum Chatillion. Þegar komið er inn í bæinn blasir við einstakur Alpa-fjallahringur. Gengið 8 tíma, hækkun 500 m, lækkun 500 m, 20 km. Piknik hádegisverður. Gisting og kvöldverður Hotel Rendez Vous https://www.hotel-rendezvous.com/
Fimmti dagur 28.8. 2020 Chatillon- Verres (18 Km) Þetta er þægilegur dagur en farið er svolítið upp og niður þegar hliðardalir eru þveraðir. Á leiðinni er gaman að stoppa við kastalana Sain Germain og Saint Vincent. Síðar um daginn lendum við á hinni fornu rómversku leið “via delle Gallie” og þegar komið er til Verres blasir við einstök fjallasýn. Gengið í 6 tíma, hækkun 350 m, lækkun 450 m, 18. km. Gisting og kvöldverður: Il Casello B&B http://www.ilcaselloverres.com/
Sjötti dagur 29.8.2020 Verres – Pont Saint Martin (15 Km) Framundan er mjög fjölbreytt gönguleið um fallega náttúru og farið er í hina einstöku kirkju Saint Martin's Parish í Arnad. Það má segja að það sé merkasti staðurinn á þessum hluta pílagrímaleiðarinnar til Rómar það er í Aostadalnum. Leiðin liggur síðan yfir tvær fornar brýr við Echallod og Bard. Bard er fallegt þorp í skugga mikils varnarvirkis sem hýsir Alpasafnið. En líka og ekki síður þá liggur þar leiðin að Donna við rómversku leiðina „via della Galle“. Göngunni lýkur svo við rómversku brúna Pont Saint Martin. Gengið 6 tíma, hækkun 150 m, lækkun 150 m, piknik eins og vanalega. Gisting og kvöldverður, Hotel Ponte Romano – Point S.Martin ponteromano.it
Sjöundi dagur 30.8.2020 Verre- Ivrea (22 Km) Við göngum enn um þægilegt gönguland og höldum nú inn á Piedmont svæðið þar sem skiptast á hæðir og lægðir. Gengið er eftir fallegum og sérstæðum stígum á milli lítilla og skemmtilegra þorpa. Arkitektúrinn í San Lorenzo þorpinu sem og Montestrutto og Montalto kastalanum er mjög athyglisverður. Gengið 6 tíma, hækkun 250 m, lækkun 350m, 22 km. Piknik eins og vanalega. Gisting og kvöldverður Albergo Luca https:// albergo-luca-ivrea.hotelmix.it
Dagur 8 31.08.2020: Ivrea frjáls dagur og heimferð Um morguninn er hægt að skoða sig um í Ivrea sem er áhugaverð og þægileg borg í Piedmonte, líklega sú stæsta sem við heimsækjum í þessari ferð. Eftir hádegi er svo lagt af stað til Milano og síðan flogið til Keflavíkur, lágmarksfjöldi 12 manns. Fararstjóri og sagnamaður Magnús Jónsson, staðarleiðsögumaður Matteo Zamboni.
Ath: ferðaskipulagið getur átt eftir að taka smávæiglegum breytingum.
Innifalið: Flug, flutningur til og frá Mílano,flutningur á farangri á milli staða og akstur síðustu kílómetrana á áfangastað ef þess er óskað. Gisting og morgunmatur 7 daga, kvöldmatur 6 daga. Suma dagna er gist í svefnsölum með 3-8 rúmum. Ekki er hægt að bóka eins manns herbergi. Íslensk fararstjórn og staðarleiðsögn
Umsögn:
Jónína Hólmfríður Pálsdóttir Alveg frábær ferð og dásamlegt landslag🙏🏻