Gönguferð um Montserrat og friðlönd í nágrenni Barselóna 17.-24. apríl 2023
Vorið 2019 buðu Göngu-hrólfur og Vita.is upp á einstaklega skemmtilega gönguferð um þrjá þjóð- og náttúrugarða í nágrenni Barselóna. Sú ferð tókst mjög vel og enn er haldið á þær slóðir dagana 17.-34. apríl 2023. Hver garður býr yfir einstæðri náttúru. Fyrst ber að nefna hið sérstæða fjallendi Montserrat sem er aðeins í 60 km. frá Barselóna. Turnlaga fjallatopparnir teygja sig í átt til himins og minna helst á sög en Serrat þýðir skorið eða tennt fjall. Í fjöllunum er frægt klaustur og kirkjan Santa Maria de Montserrat. Sant Llorenç del Munt friðlandið einkennist af grófu,grýttu og veðruðu landslagi með háum klettaveggjum og djúpum giljum og hellum. Þaðan er útsýni yfir á sérskennilegar strýtur og toppa Montserrat fjallgarðsins. Að lokum er gengið í Montseny friðlandinu sem er á skrá UNESCO vegna einstakts lífríkis og dýralífs.
Tilhögun: Frá flugvellinum í Barselóna þar sem lent erum 21.30 er haldið beint á hótelið Cel·les Abat Marcet sem er nálægt kirkjunni í Montserrat. Þar er gist þrjár nætur. Næstu daga verður gengið um einstakt landslag þessa sérstæða svæðis, minjar skoðaðar og komið við í kirkjunni og klaustrinu. Einnig er hægt er að skoða frábært listasafn sem þarna er. Þá liggur leiðin yfir í Sant Llorenç del Munt friðlandið þar sem dvalið verður í bænum Terrassa. Auk þess að ganga á hæsta fjall svæðisins la Mola 1.104 m.y.s er farið í vínsmökkun og skoðunarferð í einstaka byggingu frá „modernistatímabilinu“ en þar gætir mikilla áhrifa frá Gaudi. Síðustu dagana er dvalið í þriðja friðlandinu Montseny og meðal annars gengið á næst hæsta tindinn Matagalls sem er 1697 m.y.s. og og farið í skógargöngu í skemmtilegum beykiskógi. Eftir morgun göngu síðasta daginn er frjáls tími í Barselóna þar til farið merður me flugvallarútunni á flugvöllinn en ekki er flogið fyrr en 10.25
Verð: Fararstjóri : Steinunn Harðardóttir
Innifalið: Flug,gisting 7 nætur í tveggja manna herbergjum, allur flutningur, staðarleiðsögumaður 7 daga og íslensk fararstjórn, vínsamökkun á hótel Don Candido og skoðaunarferð í Terrassa og heimsókn í sérstæða byggingu í móderniskum stíl. Þrjár máltíðir á daga (hádeginesti) nema: komudaginn(nóttina), hádegisverður 4. dag, kvöldverður 5.dag og hádegisverður brottfarardag. Geymsla á farangri í Barselóna og rúta á flugvölinn(5.95 eu)
Fyrsti dagur, mánudagur 25. apríl. Lagt af stað frá Keflavík Reykjavík 15.00 komið til Barselóna kl.21.25 og áætlað að vera á áfangastað kringum miðnætti. Hótelið Cel·les Abat Marcet er í 720 metra hæð í Montserrat fjalllendinu. Þetta eru nútímalegar íbúðir sem eru hannaðar í sama stíl og íbúðir pílagríma gegnum aldirnar. Þaðan er einstakt útsýni til hinna sérstæðu og óvenjulegu fjall og yfir Llobregat dalinn.
Annar dagur, þriðjudagurinn 26. apríl Santi Mikaels stígurinn. Eftir morgunverð er farið í 3-4 tíma þægilega göngu. Haldið er eftir stíg sem kenndur er við“Sant Miquel y les Ermites“ eða heilagann Miquel og einsetumennina. Leiðin liggur fram hjá dvalarstað tveggja einsetumanna og býður upp á frábært útsýni til Miðjarðarhafsins og á einstaka fjallatoppa Montserrat. Hæst er farið í 971 metra hæð á Pla de les Tarantules, þar í lítilli byggingu er sýning sem veitir áhugaverðar upplýsingar um Montserrat svæðið. Á leiðinni til baka er gott útsýni yfir Tebes crags. Eftir gönguna gefst góður tími til að skoða klaustrið og kirkjuna með svörtu “maddonnunni” einnig er hægt að skoða fjölbreytt listasafn klaustursins, Montserrat safnið og er það vel þess virði, opið frá 10.00-17.45. (Ekki innifalið) kvöldverður á hótelinu í næsta húsi.: 4.2 km - hækkun 300 m
Þriðji dagur miðvikudagurinn 27. apríl Toppurinn ,“Heilagur Jeroni” Eftir morgunverð er farið í 5-6 tíma gönguferð, (með stoppum). Leiðin liggur fyrst að „Santa Anna hermitage“eða kapellu heilagrar Önnu í 890 metra hæð. Síðan er haldið á Sant Jeroni sem er 1149m.y.s og hæsti hluti Montserrat fjalllendisins. Þessi tindur er aðeins nokkrir fermetrar að ummálið og af honum er frábært útsýni til allra átta. Ef veður og tími leyfir verður síðan haldið á annan útsýnisstað sem nefnist Moro. Á bakaleiðinni er farið framhjá SantBenet hermitage eða Sant Benet kapellunni. Kvöldverður á hótelinu í næsta húsi
8.5 km - hækkun: 600 m
Fjórði dagur fimmtudagurinn 28. apríl. Gamla þjóðleiðin til Manresa. Eftir morgunverð er farangurinn fluttur á “Hotel Don Cándido.” í bænum Terrassa en hópnum er ekið til Rellinars sem er í Sant Llorenç del Munt náttúrugarðinum. Þar hefst fyrsta gangan á svæðinu. Markmið dagsins er að heimsækja Obac fjallgarðinn sem er mikilvægur hluti Sant Llorenç del Munt garðsins. Haldið er eftir stígnum Camí ral de Manresa til Terrassa. Þetta er gömul þjóðleið sem farin var gegnum aldirnar fram að komu bílsins. Haldið er eftir fjallshryggjunum og við blasir frábært útsýni til Pyreneafjallanna, yfir á hinn tindótta Montserrat fjallgarð og fleiri fjallasvæði. Göngunni lýkur í útjaðri Terrassa en þaðan tökum við strætó á hótelið. Þangað komin heimsækjum við mjög sérstæða modernista byggingu sem er í anda Gaudi „La Freixa“frá 1907 og fáum þar rúmlega klukkutíma leiðsögn. Um kvöldið verður tapas máltíð í Terrassa. (Ekki innifalið í verði) https://www.guestreservations.com/hotel-don-candido/booking? mmsclkid=ca085318130118e05acc32617eee818c 13.6 km - hækkun : 400 m
Fimmti dagur föstud. 29.apríl. Fjallið „Mola“og hádegisverður á toppnum.
Eftir morgunmat er ekið stuttan spöl inn í Sant Llorenç del Munt garðinn og nú er markið er sett á hæsta fjallið, La Mola. Gangan hefst í Estenalles skarðinu sem er í 873metra hæð og henni lýkur í nágrenni við Matadepera sem er í 668 metra hæð. Haldið er í suður eftir fjallshrygg sem nefnist Pagès og stefnt á La Mola 1103 m.y.s. Á toppnum heimsækjum við klausturkirkju og snæðum hádegisverð í litlu og skemmtilegu veitingahúsi. La Mola er einn besti útsýnisstaður Katalóníu. Á vorin má sjá snæviskrýdd Pyreneafjöllin og jafnvel Canigou sem er þekktur tindur í Frakklandi. Það er enginn jeppavegur upp á toppinn svo öll aðföng í veitingahúsið eru flutt á ösnum og múldýrum. Eftir hádegisverðurinn er haldið niður að rútunni sem flytur okkur heim á hótel. Þar brögðum við á framleiðslu héraðsins svo sem ostum og pylsum sem og víni frá suður Katalóníu. Síðan er kvöldverður á hótelinu. 9km - hækkun: 541 m
Sjötti dagur laugardagurinn 30. apríl. Fjallið Matagalls. Eftir morgunmat er farangurinn fluttur á síðasta hótelið Sant Marçal en hópnum verður ekið í Montseny náttúrugarðinn og upp í Coll Formic skarðið sem er í 1144 metra hæð. Þaðan er haldið á toppinn Matagalls sem er 1696 metra hár og sá næst hæsti á svæðinu. Við höldum eftir vesturhrygg fjallsins en þaðan er mjög fallegt útsýni yfir þorpin og fjöllinn í næsta nágrenni. Það er líka sérlega falleg sýn til Pyreneafjallanna því þessi tindur er nær þeim en aðrir sem við höfum klifið. Síðan er haldið í austur og niður í Sant Marçal skarðið sem er í 1106 metra hæð. Á leiðinni komum við á fallega sléttu Pregon pass sem er í 1532 metra hæð og göngum gegnum sérstæðan beykiskóg. Gisting: Hotel Sant Marçal Kvöldverður á hótelinu. 8 km - hækkun: 610 m
Sjöundi dagur sunnudagurinn 1.maí Skógarganga „La Tordera” La Tordera er nafnið á stærstu ánni í Katalóníu en upptök hennar eru rétt hjá Hotel Sant Marçal, við brunninn Font Blanca . Við byrjum gönguna við hótelið og höldum með norðurhlíð dalsins sem áin Tordela hefur grafið í gegnum aldirnar. Í fyrstu er gengið í gegnum einstaklega fallegan beykiskóg en þegar komið er yfir í suður hlíð fjallsins verður miðjarðarhafseik æ meira áberandi. Við förum framhjá bænum Can Font, sem er í 830m hæð. Hann er gott dæmi um þá einangruðu byggð sem finna má í þessum hluta Montseny. Áður en farið er yfir Tordera ána þurfum við að fara fyrir klettasnösina Bovilà og fylgja dálitið varasömum slóða. Í þessum hluta dalsins fara beykilundir aftur að verða áberandi. Við höldum eftir breiðum stíg að að Blanca uppsprettunni sem er rétt við hótelið og síðan heim. Kvöldverður á hótelinu. 14.6 km - Elevation gain: 496 m
Áttundi dagur mánudagurinn 2. maí heimferðardagur. Eftir morgunmat er farið í tveggja til þriggja tíma göngu í nágrenni hótelsins. Gengið er eftir þægilegum moldarvegi gegnum stórfenglegt skóglendi með fjölda áhugaverðra trjátegunda. Eftir hádegisverð á veitingastað á Saint Celoni brautarstöðinni (ekki innifalinn) er haldið með lest til Barselóna. Eftir að farngurinn hefur verið settur í geymslu á lestarstöðinni getur hver og einn varið nokkrum klukkutímum í borginni. Til dæmis er hægt að heimsækja Palau de la Música eða Hospital de Sant Pau
Um 19.00 er síða haldið með flugrútunni á flugvöllinn og flogið heim 22.25.