Skemmtilegar gönguferðir, gist í uppgerðu eyðiþorpi,vínsmökkun,"slow food" veitingastaður,markaður og margt fleiraFróðleikur um landslag, sögu og menningu Garfagnanadalsins sem sagður hefur verið best geymda leyndarmál Toscana. Enn bjóða Göngu Hrólfur og Vita upp á hina einstaklega skemmtilegu og fróðlegu gönguferð í Garfagnanadalnum í Toscana. Auk þess að ganga á hið skemmtilega fjall Pania De Corfino og um undurfagurt landslag dalsins er fræðst um byggðarsögu héraðsins, farið á veitigastað sem sérhæfir sig í mat úr heimabyggð og bragðað á víni úr sveitinni. Staldrað við á markaði í bænum Casteluovo de Garfagnana. Gist í litlu fjallaþorpi, hinum einstaka miðaldabæ Barga og í uppgerðu eyðiþorpi hátt uppi í fjallshlíð. Fararstjóri:Steinunn Haraðardóttir, staðarleiðsögumaður Matteo Zamboni. Verð 239.500 nánast allt innifalið.
https://vita.is/ferd/gonguferd-toscana
2 Comments
Margrét Jónsdóttir
4/27/2022 07:23:32 pm
Hvað kostar ferðin
Reply
Göngu Hrólfur
4/29/2022 05:32:41 am
Verðið er um 240.00
Reply
Leave a Reply. |
Steinunn Harðardóttir leiðsögumaður og útvarpsmaðu r er hugmyndafræðingur og aðalfarðarstjóri Göngu Hrólfs og hefur leitt ferðir hans frá upphafi. Hún þróar og skipuleggur ferðirnar og hefur verið fararstjóri í ferðum í hefðbundnum takti á Majorka, Krit, í Toskana, Pyreneafjöllum, Slóvakíu ,Tyrkland ,Tenerife og í sælkeratakti í Toskana.Steinunn er félagsfræðingur að mennt og stýrði um árabil útvarpsþætti um náttúruna,útivist og ferðamál á Rás 1 og hefur í fjölmörg ár farið með ferðamenn vítt og breitt um Ísland.
|