Fróðleikur um landslag sögu og menningu Garfagnanadalsins sem sagður hefur verið best geymda leyndarmál Toscana í gönguferð 1.-8. júníEnn bjóða Göngu Hrólfur og Vita upp á hina einstaklega skemmtilegu og fróðlegu gönguferð milli þorpa í Garfagnanadalnum í Toscana. Auk þess að ganga á hið skemmtilega fjall Pania De Corfino er fræðst um byggðarsögu héraðsins, farið á veitigastað sem sérhæfir sig á mat úr heimabyggð og bragðað á víni úr sveitinni. Staldrað við í bænum Casteluovo de Garfagnana og gist í uppgerðu eyðiþorpi og hinum einstaka miðaldabæ Barga . Gönguferð um fjöll og eyði dali, vínekrur og lítil þorp í Garfagnanadalnum sem sagður er eitt best varðveitta leyndarmál Toscana. https://vita.is/ferd/gonguferd-toscana
0 Comments
Leave a Reply. |
Steinunn Harðardóttir leiðsögumaður og útvarpsmaðu r er hugmyndafræðingur og aðalfarðarstjóri Göngu Hrólfs og hefur leitt ferðir hans frá upphafi. Hún þróar og skipuleggur ferðirnar og hefur verið fararstjóri í ferðum í hefðbundnum takti á Majorka, Krit, í Toskana, Pyreneafjöllum, Slóvakíu ,Tyrkland ,Tenerife og í sælkeratakti í Toskana.Steinunn er félagsfræðingur að mennt og stýrði um árabil útvarpsþætti um náttúruna,útivist og ferðamál á Rás 1 og hefur í fjölmörg ár farið með ferðamenn vítt og breitt um Ísland.
|